Yfir 60 sjónvarpsstöðvar sem leggja áherslu á fréttir, skemmtun, fræðslu, íþróttir og tónlist. Boðið er upp á svokallaðar plúsrásir fyrir íslensku sjónvarpsstöðvarnar ásamt vel völdum erlendum rásum. Plúsrásir eru þær stöðvar sem eru sendar út með klukkutíma seinkun þannig að þú ættir ekki að missa af neinu á þeim stöðvum.
Með áskrift að SkjáHeimi fylgir einnig aðgangur að 24 erlendum útvarpsstöðvum, í fullum stafrænum gæðum, ásamt íslensku útvarpsstöðvunum. Erlendu útvarpsrásirnar eru þema tengdar og má þar t.d. finna stöðvar tileinkaðar ákveðnum áratugum og sérstökum tónlistarstefnum. Engar auglýsingar eru á erlendu stöðvunum heldur er eingöngu spiluð tónlist allan sólarhringinn.
Sérvalinn fræðslupakki sem samanstendur af 16 rásum sem allar varpa nýju ljósi á umheiminn. Hvort sem um er að ræða vandaðar fréttir, umfjöllun um framandi lönd, fortíðina, undarleg dýr eða nýjustu tískustrauma, ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Fjölskyldupakki SkjásHeims samanstendur af 14 sjónvarpsrásum sem eru sérvaldar með áherslu á þarfir allrar fjölskyldunnar. Þarna finna allir eitthvað við sitt hæfi hvort sem um er að ræða fréttir, íþróttir, barnaefni eða skemmtun.
Sportpakkinn samanstendur af erlendum sjónvarpsrásum sem flytja fréttir af gangi mála í heimi íþróttanna.
Dagskráin samanstendur af beinum útsendingum frá stórum íþróttaviðburðum, fréttaflutningi auk fræðslumynda um fræga íþróttamenn og sögufræg atvik. Það er komið víða við og fjölbreytnin er mikil.