- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning


  • Fös 8. Apríl 2011

    Metáhorf í SkjáFrelsi í Mars 2011


    Þri 23. Júní 2009

    Matarklúbburinn

    Matarklúbburinn er nýr íslenskur matreiðsluþáttur þar sem einn fremsti matreiðslumeistari landsins, Hrefna Rósa Sætran, matreiðir ljúffenga og einfalda rétti fyrir áhorfendur og gesti sína.

     

    Hrefna galdrar fram gómsæta rétti sem kitla bragðlaukana og í hverjum þætti verður boðið upp á einn fiskrétt og einn kjötrétt. Máltíðin er síðan fullkomnuð með freistandi eftirrétti.

     

    Í þáttunum er Hrefna með skemmtilegar og spennandi uppskriftir sem hún kryddar með nýjum hugmyndum. Andrúmsloftið er afslappað og óformlegt, enda er Matarklúbburinn léttur og skemmtilegur þáttur sem gefur áhorfendum hugmyndir um hvað er hægt að gera á einfaldan hátt. Hrefna upplýsir öll litlu leyndarmál meistarakokkanna og sýnir áhorfendum hvernig hægt er að matreiða ljúffenga rétti, sem líta út fyrir að vera flóknir á veitingastöðum en geta reynst afar einfaldir ef nánar er að gáð.

     

    Matarklúbburinn eru á dagskrá á mánudagskvöldum kl. 20.30.

    Þátturinn er endursýndur á miðvikudögum kl. 7.30 að morgni og kl. 12.00 á hádegi, á fimmtudögum kl. 19.30 og á laugardögum kl. 17.30


    Fös 29. Maí 2009

    Frábært áhorf

    Það var frábært áhorf á SkjáEinn í síðustu viku eins og meðfylgjandi tölur sýna og þeir vita sem fylgjast með áhorfi miðlanna.

    Það er ljóst að SkjárEinn ætti að vera burðarliður í birtingarplönum þar sem sterkustu neysluhóparnir horfa afgerandi mest á SkjáEinn.
    Bráðabirgðartölur fyrir þessa viku sýna að engin breyting er á og því góður tími framundan fyrir auglýsendur.
    Ég hvet fólk til að skoða gögnin, áhorf á bæði frum- og endursýningar á þeim stöðvum sem auglýsingar fylgja með í endursýningar, reikna út snertiverð og þá kemur greinilega í ljós hvar hagstæðast er að birta.

    Fagleg vinnubrögð hafa sjaldan verið mikilvægari en nú þegar viðskiptavinir þurfa að passa upp á hverja krónu og því mikilvægt að kynna sér gögn af kostgæfni.


    Fös 22. Maí 2009

    Lokaþáttur af Nýju útliti á þriðjudaginn

    Nýtt útlit hefur slegið í gegn í vor með förðunarfræðin fræga fólksins, Karl Berndsen í fararbroddi.

    Á þriðjudaginn klukkan 21:00 verður lokaþáttur seríunnar sýndur.


    Fös 22. Maí 2009

    Ungfrú Ísland 2009

    Keppnin um Ungfrú Ísland 2009 verður í beinni útsendingu á SkjáEinum föstudaginn 22. maí.

    Útsendingin sem verður öll hin glæsilegasta hefst klukkan 22:00 og stendur yfir í tvo tíma.

     


    Mið 18. Mars 2009

    Nýtt Útlit

    Förðunarfræðingur fræga fólksins, Karl Berndsen, er hér kynntur til leiks með nýjan þátt þar sem venjulegt fólk fær stjörnuyfirhalningu og fær það algjöra útlitsbreytingu allt frá förðun til fata. Einnig mun Karl gefa áhorfendum góð ráð sem allir ættu að geta nýtt sér.
    Karl er sérfræðingur á sínu sviði og veit hvað konur vilja. Hann hjálpar þeim að finna réttu brjóstahaldarana eða gallabuxurnar sem draga fram það besta í þeirra vexti. Hann gefur ráð um sídd á pilsum og kjólum og hvað fer hverri vel miðað við hæð og vaxtarlag.
    Karl Berndsen hefur um árabil verið búsettur í London en starfað út um heim allan sem hárgreiðslu og förðunarmeistari. Hefur hann unnið með fjölmörgum stórstjörnum í gegnum tíðina eins og ofurfyrirsætunni Naomi Campbell, tískuhönnuðunum Stellu McCartney og John Galiano og hljómsveitinni Sugababes.
    Nýtt útlit verður á dagskrá á þriðjudagskvöldum klukkan 21:00.
     


Síður Skjásins


Skjárinn , aðrar síður

Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is