"Bestu gamanþættir sem sýndir eru í sjónvarpi"
Þetta er sjötta þáttaröðin af grínþættinum 30 Rock. Þátturinn hefur hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal þrjú Emmy-verðlaun fyrir að vera besti grínþátturinn. Árið 2009 setti 30 Rock nýtt met þegar þættirnir hlutu 22 tilnefningar til Emmyverðlauna og hefur engin gamanþáttaröð hlotið jafnmargar tilnefningar.
Tina Fey er hugmyndasmiðurinn á bakvið þættina en hún leikur auk þess eitt aðalhlutverkanna, hina bráðfyndnu Liz Lemmon sem stýrir gamanþætti í sjónvarpi. Alec Baldwin er einnig frábær í hlutverki yfirmanns hennar, Jack Donaghy. Meðal gestaleikara í þessari þáttaröð eru Kristen Schaal og James Marsden.
Í þessari þáttaröð byrjar Liz með manni, Jack reynir að ná konunni sinni aftur frá Norður Kóreu, Kenneth hugar að frama sínum innan fyrirtækisins og Jenna verður fræg eftir að hafa fengið tækifæri á að vera dómari í raunveruleikaþætti.