- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning



90210

Mánudagar kl. 20:10


Ný og endurbætt útgáfa af vinsælustu unglingaseríu allra tíma, Beverly Hills 90210.

Í þessari útgáfu er það Wilson-fjölskyldan sem er miðpunktur sögunnar. Systkinin Annie og Dixon Wilson fluttu til Beverly Hills með foreldrum sínum og komust fljótt að því að líf unglinganna í þessu ríkisbubbasamfélagi var gjörólíkt því sem þau áttu að venjast í Kansas.

Líkt og í upprunalegu útgáfu þáttanna fá áhorfendur að fylgjast með ástum og átökum unglinganna og sjá að lífið í Beverly Hills er ekki bara dans á rósum.

Þetta er fjórða serían af þessum vinsælu þáttum. Þegar hér er komið sögu eru söguhetjurnar komnar í háskóla. Naomi er ófrísk og á erfitt með að sætta sig við að vera ekki lengur vinsælasta stelpan í skólanum og grípur til sinna ráða.

Næsti þáttur

Mánudagur 6. febrúar kl. 20:10 Dixon finnur sig knúinn til að framleiða tónlistarsmell þegar hann fær afnot af hljóðveri Navids. Silver gerir misheppnaða tilraun til að gera auglýsingu fyrir barinn hans Liams og Ivy á í innri baráttu.

Síður Skjásins


Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is