- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning



According to Jim


Grínistinn Jim Belushi snýr galvaskur aftur í hlutverki hins íturvaxna en andlega vanþroska fjölskylduföður í gamanseríunni According to Jim.

Þetta er áttunda og jafnframt síðasta serían af þessum bráðskemmtilegu þáttum sem standa ávallt fyrir sínu.

Fjölskyldufaðirinn Jim leggur sig allan fram um að gera einfalda hluti flókna og hagar sér stundum eins og versta karlremba en inni við beinið er hann ljúfur sem lamb.

Eiginkonan fyrirgefur honum oftast kjánalegu uppátækin þrátt fyrir að hann eigi það sjaldnast skilið.

According to Jim er þáttur sem öll fjölskyldan getur skemmt sér yfir.


Síður Skjásins


Skjárinn , aðrar síður

Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is