Fimmtudagar kl. 21:00
Frá framleiðendum hinna geysivinsælu þátta um Sopranos fjölskylduna kemur Blue Bloods með Tom Selleck í aðalhlutverki.
Reagan fjölskyldan á sér langa sögu innan lögreglunnar í New York. Frank er lögreglustjóri borgarinnar sem aldrei sefur á meðan synir hans tveir starfa sem lögreglumenn. Dóttir hans er nýfráskilinn aðstoðarsaksóknari. Elsti sonurinn beitir vafasömum aðferðum réttlætis á meðan Jamie, sá yngsti gefur lögfræðiferil sinn upp á bátinn og gerist lögregluþjónn.
Þetta er önnur sería af þessum vinsælu og dramatísku þáttum.