Laugardagur 3. mars kl. 22:05
Upptaka frá stærstu verðlaunahátíð Evrópu þar sem allar skærustu stjörnurnar í tónlistarbransanum koma fram. Veitt verða verðlaun í ýmsum flokkum tónlistar fyrir árið 2011. Þetta er 32. skiptið sem þessi verðlaunahátíð er haldin en verðlaunagripurinn glæsilegi er hannaður af Vivienne Westwood. Meðal þeirra sem koma fram eru Rihanna, Adele, Coldplay, Blur og Florence & the Machine.