- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning



Britain's Next Top Model

Sunnudagar kl. 20:10


Sjötta þáttaröðin af fyrirsætukeppninni Britain’s Next Top Model hefur göngu sína í mars.

Nú mætir glæný dómnefnd til leiks með ofurfyrirsætuna Elle McPherson í fararbroddi en hún tekur við fyrirsætunni Lisa Snowdon sem hefur stýrt þáttunum af festu síðustu fjórar þáttaraðir. Dómarar þáttaraðarinnar auk Elle eru tískuhönnuðurinn Julien MacDonald, stílistinn Grace Woodard og fyrirsætan Charley Speed.

Fjórtán stúlkur taka þátt að þessu sinni og er von á afar spennandi þáttaröð þar sem ferðinni er meðal annars heitið til Noregs, Spánar og Malasíu.

Sýningar hefjast 14. mars 2012

Næsti þáttur

Miðvikudagur 14. mars kl. 20:10 Í fyrsta þættinum mæta 25 stúlkur til leiks og þær eru samstundis sendar í herþjálfun þar sem þær hitta fyrir nýja kynninn; Elle Macpherson. Fimm stúlkur eru fljótlega látnar fjúka og þær 20 sem eftir eru taka þátt í hópmyndatöku. Að lokum standa 14 stúlkur eftir.

Síður Skjásins


Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is