David Duchovny er frábær í Californication en þetta er fjórða þáttaröðin sem SkjárEinn sýnir um rithöfundinn og kvennabósann Hank Moody.
Hank er laus úr fangelsi og fær mikla athygli fjölmiðla. Raunar svo mikla að framleiðendur í Hollywood vilja búa til kvikmynd um atburðina í lífi hans.