Morð eru daglegt brauð í New York og rannsóknardeildin fær að glíma við flóknar morðgátur.
Hún lætur sönnunargögnin leiða sig áfram þar til sannleikurinn kemur í ljós.
Mac Taylor er fyrrum hermaður sem fórnar sér fyrir vinnuna og gefst ekki upp fyrr en hann hefur leyst málin.
Nú hefur nýr liðsmaður bæst við rannsóknarteymið en það er leikkonan Sela Ward sem fer með hlutverk Jo Danville.
Frábærir þættir sem notið hafa mikilla vinsælda í Bandaríkjunum.