Sunnudagar kl. 21:50
Sjötta þáttaröðin um dagfarsprúða morðingjann Dexter Morgan sem drepur bara þá sem eiga það skilið.
Í síðustu þáttaröð gekk mikið á hjá Dexter sem þurfti að takast á við eiginkonumissinn, fjölskyldumálin og eltast við hrottafengna raðmorðingja.
Ár er liðið síðan vinalegi blóðslettufræðingurinn þurfti að kveðja sálufélaga sinn Lumen og hann er aftur orðinn eins og hann á að sér að vera. Það er enginn skortur á illmennum í Miami og fyrr en varir verður á vegi Dexters stórhættulegur ofstækismaður sem mun reynast honum erfiður ljár í þúfu.
Í þessari seríu leikur Collin Hanks sonur Tom Hanks, fornleifafræðinginn Travis Marshall sem Dexter grunar um græsku en hann er fylgjandi ofstækismannsins hættulega.