Þættir sem byggðir eru á samnefndri kvikmynd frá árinu 1993 eftir skáldsögu Johns Grisham. Tíu ár hafa nú liðið frá því að lögfræðingurinn Mitchell knésetti voldugt lögfræðifirma frá Memphis vegna tengsla þess við mafíuna. Í kjölfarið hrundi spilaborg skipulagðra glæpa í Chicago og Mitchell neyddist til að fara huldu höfði með hjálp vitnaverndar Alríkislögreglunnar. Þegar mafíuforinginn deyr í fangelsi ákveður Mitchell að snúa aftur upp á yfirborðið en áður en hann veit af, hafa draugar fortíðar leitað hann uppi. Aðalhlutverk eru í höndum Josh Lucas og Juliette Lewis.