Dramatísk þáttaröð sem hlotið hefur einróma lof gagnrýnenda.
Sögusviðið er smábærinn Dillon í Texas þar sem lífið snýst um árangur fótboltaliðs skólans. Bæjarbúar gera miklar kröfur til liðsins og það er því mikil pressa á ungum herðum.
Það er mikil dramatík í lífi unglinganna þar sem ástir og átök skiptast á.