Þessir bráðfyndnu þættir sem nefnast GCB eru byggðir á skáldsögunni Good Christian Bitches. Þættirnir gerast í Texas og fjalla um skutluna hana Amöndu Vaughnsem er nýorðin ekkja með tvö börn sem að þráir að komast á byrjunarreit og hefja nýtt líf.
Amanda ákveður að flytja aftur til æskustöðva sinna í Texas. En þar hafa hlutirnir breyst mikið eins og hún hefur sjálf gert. Hún var þessi svokallaða "bad girl" á sínum yngri árum og ansi margar dömur á svæðinu eru með horn í hennar síðu. Henni finnst hún föst í hringiðju slúðurs, aflitaðs hárs, botoxfyllinga og svika.