Góða eiginkonan Alicia snýr aftur í þriðju þáttarröð af The Good Wife.
Þættirnir hafa slegið rækilega í gegn og fékk stórleikkonan Julianna Margulies meðal annars Golden Globe fyrir hlutverk sitt í þáttunum.
Þegar við skildum síðast við lögfræðinginn Aliciu Florrick hafði hún komist að ófyrirgefanlegu leyndarmáli um eiginmann sinn. Þau hafa skilið að borði og sæng og Alicia þróar samband sitt við Will.