Hawaii Five-0 byggir á samnefndnum spennuþáttum sem nutu mikilla vinsælda á sjöunda og áttunda áratugnum og fjalla um Steve McGarrett og sérsveit sem honum er falið að mynda í kjölfar dauða föður síns.
Ævintýrin halda áfram í annarri þáttaröðinni af þessum vinsælu spennuþáttum um töffarann Steve McGarrett og sérsveit hans sem starfar á Hawaii.
Steve og félagi hans Danny Williams eru jafn ólíkur og dagur og nótt en tekst samt að klára sín mál í sameiningu – allt frá mannránum til hryðjuverka.
Scott Caan sem lék í Oceans kvikmyndunum vinsælu er tilnefndur til Golden Globe verðlauna fyrir hlutverk sitt í þáttunum. Auk hans eru Alex O‘Loughlin sem leikur McGarrett sjálfan og Daniel Dai Kim sem áhorfendur kannast við úr Lost þáttunum.
Frábærir þættir sem hafa svo sannarlega slegið í gegn.