Breski leikarinn Damian Lewis leikur aðalhlutverkið í þáttaröðinni Life sem snýr nú aftur á dagskrá SkjásEins.
Þetta er önnur þáttaröðin um lögreglumanninn Charlie Crews sem sat í fangelsi í 12 ár fyrir morð sem hann framdi ekki. Eftir að sakleysi hans var loksins sannað hlaut hann milljónir dollara í skaðabætur en ákvað að snúa aftur til starfa í lögreglunni, staðráðinn í að finna mennina sem komu á hann sök í málinu. Crews er svolítið sérvitur og öðruvísi en aðrar löggur. Í hverjum þætti rannsakar hann morðmál með félaga sínum en vinnur jafnframt hörðum höndum að því að fletta ofan af svikurum í æðstu stöðum.
Þetta eru þrælgóðir þættir sem gaman er að fylgjast með.