Ný dramatísk þáttaröð um hinn hæfileikaríka og óvenjulega taugaskurðlækni, Gabriel Monroe sem leikinn er af hinum marverðlaunaða James Nesbitt sem fékk sitt fyrsta stóra hlutverk í þáttunum Cold Feet á árunum 1998-2003. Einnig lék hann Jekyll í samnefndum þáttum sem voru sýndir á SkjáEinum fyrir nokkrum árum. Verðlaunin sem hann hefur unnið eru m.a. British Comedy Award, Television and Radio Industries Club Award og National Television Award.
Í þáttaröðinni Monroe fylgjumst við með sjúkrahúslífinu þar sem ótti, vonir og hræðsla er daglegt brauð. Oft er stutt á milli lífs og dauða. Við sjáum hvernig Monroe fer sínar eigin leiðir þegar kemur að því að eiga við sjúklingana á sjúkrahúsinu.