Fróðleg og bráðfyndin þáttaröð sem leiðir áhorfendur inn í heim sígauna sem er mörgum hulinn og fjarstæðukenndur. Í þáttunum er fylgst með síaguna konum sem eru í giftingarhugleiðingum og hvernig líf þeirra er á jaðri samfélagsins.
My Big Fat Gypsy Wedding var valinn nýstárlegasti þátturinn á fjölmenningarhátíðinni (Cultural Diversity Awards) árið 2010 og var sömuleiðis tilnefndur til Astra Awards, Audience Award (TV), National Television Awards í Bretlandi.