Todd er venjulegur millistjórnandi hjá fyrirtæki sem selur smádót í gegnum símasölu. Dag einn þegar hann mætir til vinnu er honum sagt að verkefnum símaversins hafi verið útvistað til Indlands – og hann eigi að flytja þangað til að hafa yfirumsjón með því. Todd ákveður að slá til og mætir til Indlands í vinnuna þar sem loftslagið er öðruvísi, menningin önnur og fólkið frábrugðið því sem hann á að venjast.