Önnur þáttaröðin af Parenthood sem byggð er á samnefndri gamanmynd frá 1989. Ron Howard leikstýrði myndinni og hann er aðalframleiðandi þessarra þátta sem hlotið hafa mjög góða dóma hjá gagnrýnendum.
Í þáttunum er Braverman-fjölskyldunni fylgt í gegnum súrt og sætt. Systkinin eru fjögur og afar ólík en þau þurfa öll að glíma við vandamál sem allir foreldrar kannast við. Þetta eru í senn fyndnir, hjartnæmir og dramatískir þættir sem hafa fengð mjög góðar viðtökur hjá bandarískum áhorfendum og þegar er hafin framleiðsla á nýrri þáttaröð.
Aðalhlutverkin leika Laruen Graham (Gilmore Girls), Peter Krause (Six Feet Under), Erika Christensen ( Traffic), Dax Shepard, Monica Potter, Craig T. Nelson, Bonnie Bedelia.