Gamanþáttaröðin Parks and Recreation kemur frá framleiðendum og The Office.
Í þáttunum er gert grín að því hvernig opinberir starfsmenn geta gert einfalda hluti mjög flókna.
Amy Poehler (Saturday Night Live og Baby Mama) leikur aðalhlutverkið, konu sem vinnur á bæjarskrifstofunni í Pawnee í Indiana. Almenningsgarðar og leiksvæði barna eru hennar sérsvið og hún tekur starfið mjög alvarlega. Samstarfsfólk hennar er frekar skrautlegt og það hafa ekki allir sama áhugann á starfinu og Leslie.