Bandarísk sakamálasería um konu sem vinnur fyrir bandarísku vitnaverndina.
Mary Shannon er hörkukvendi sem elskar starfið og er tilbúin til að leggja ýmislegt á sig fyrir fólkið sem hún á að vernda.
Allir sem eru í bandarísku vitnaverndinni eiga hættulega óvini sem reyna allt til að koma vitnunum fyrir kattarnef.
En Mary er ekkert lamb að leika sér við og hún er góð í sínu starfi.