Glæný þáttaröð með frábærum leikurum í aðalhlutverkum.
The Prisoner er nútímaleg endurgerð á frægri þáttaröð frá 1967 sem er svokallað „cult classic“ með stóran hóp aðdáenda enn í dag.
Þættirnir fjalla um mann sem rankar við sér í undarlegum bæ í miðri eyðimörk og man ekki hvernig hann komst þangað. Einu minningarnar eru frá lífi hans í New York. Hann kemst að því að bæjarbúar hafa enga vitneskju um veröldina fyrir utan bæinn og flestir eru hæstánægðir með lífið og tilveruna. Í þessum dularfulla bæ bera íbúarnir engin nöfn en hver og einn hefur sitt númer. Einn maður ræður öllu og fylgist grannt með öllu sem íbúarnir gera. Leitin að sannleikanum um þessa dularfullu tilveru gæti reynst hættuleg og þeir sem reyna að flýja eru í bráðri hættu.
Aðalhlutverkin leika Sir Ian McKellen (Lord of the Rings) og Jim Caviezel (The Passion of the Christ).