Glæný og hrollvekjandi þáttaröð frá Steven Spielberg sem fjallar um leitarhóp sem lendir í yfirnáttúrulegum aðstæðum í Amazon.
Í kjölfar þess að þekktur landkönnuður og sjónvarpsmaður, Dr. Emmet Cole, hverfur á ferð sinni um regnskóga Amazon, setur eiginkona hans saman leitarflokk. Til að fjármagna ferðina fær framleiðandi að gera heimildamynd um ævintýrið.