- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning



Royal Pains


Læknirinn Hank snýr aftur í þessari skemmtilegu þáttaröð um ungan lækni sem slær í gegn sem einkalæknir ríka fólksins í Hamptons.

Hank Lawson var mikils metinn í starfi, átti glæsilega kærustu og flotta íbúð í New York. En allt breyttist þegar hann tók ungan sjúkling fram yfir einn af bakhjörlum spítlans. Hank var rekinn úr starfi og útskúfaður úr læknasamfélaginu. Kærastan gafst upp á honum og hann fékk hvergi vinnu. Hann var að veslast upp í sjálfsvorkun þegar yngri bróðir hans dró hann með sér í helgarferð til Hamptons þar sem fræga og ríka fólkið býr. Þar gerðust þeir boðflennur í partí í lúxusvillu við ströndina og Hank vann hetjudáð þegar hann bjargaði lífi eins gestanna. Í kjölfarið fékk hann hvert símtalið af öðru frá forríkum íbúum Hamptons sem óskuðu eftir þjónustu hans.


Síður Skjásins


Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is