- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning



Saturday Night Live

Laugardagar kl. 20:15


Vinsælasti grínþáttur allra tíma.

Þessir stórskemmtilegu þættir hafa kitlað hláturtaugar áhorfenda í meira en þrjá áratugi en fyrsti þátturinn fór í loftið í bandarísku sjónvarpi árið 1975. Margir af frægustu gamanleikurum Hollywood hafa stigið sín fyrstu spor í Saturday Night Live og þeir leikarar sem nú eru í þáttunum eiga vafalítið eftir að ná langt í bransanum.

Í þáttunum er gert óspart grín að stjórnmálamönnum og fræga fólkinu með húmor sem hittir beint í mark. Í hverjum þætti kemur kunnur gestaleikari og leikur stórt hlutverk í gríninu auk þess sem frægasta tónlistarfólk heims skemmtir áhorfendum milli atriða.

Saturday Night Live hefur hlotið fjölda verðlauna í gegnum tíðina, þar á meðal 21 Emmy-verðlaun. Árið 2002 var þátturinn í tíunda sæti á lista TV Guide yfir 50 bestu sjónvarpsþætti allra tíma og 2007 var þátturinn á lista Time Magazine yfir 100 bestu sjónvarpsþætti allra tíma.

Næsti þáttur

Laugardagur 11. febrúar kl. 22:10 Boardwalk Empire-stjarnan Steve Buscemi er gestastjórnandi kvöldsins og bregður sér í hin ýmsu hlutverk.

Síður Skjásins


Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is