- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning



The Voice

Föstudagar kl. 21:00


Mikil eftirvænting er meðal áhorfenda fyrir þessum vinsælu þáttum sem slógu í gegn á síðasta ári. The Voice er bandarískur raunveruleikaþáttur þar sem leitað er hæfileikaríku tónlistarfólki. Dómararnir sem í senn eru þjálfarar söngvaranna eru ekki af verri endanum, en í fríðan hóp þeirra hafa nú bæst söngkonan Shakira og tónlistarmaðurinn Usher.

The Voice er frábrugðinn öðrum raunveruleikaþáttum þar sem leitað er að hæfileikafólki. Í The Voice eru fyrst haldnar áhorfendaprufur þar sem að dómararnir snúa baki í listamennina. Þeir dæma eingöngu eftir röddinni. Lítist dómaranum á röddina þá ýtir hann á takka sem snýr stólnum hans og hann fær að sjá listamanninn. Með því að snúa stólnum þá er hann búinn að velja listamanninn í sitt lið. Þegar hver dómari er kominn með sitt lið þá hefst keppnin af alvöru.

Þátturinn hefur slegið rækilega í gegn vestanhafs og hefur skotið sínum helsta keppinauti American Idol ref fyrir rass.


Síður Skjásins


Skjárinn , aðrar síður

Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is