Föstudagur 26. ágúst kl. 21:00
Söfnunar- og skemmtidagskrá í beinni útsendingu þar sem landsmönnum gefst kostur á að safna fyrir Neistann sem er styrktarfélag hjartveikra barna. Á meðan á söfnuninni stendur verður fjöldi skemmtiatriða auk þess sem landsþekktir einstaklingar svara í símann og taka á móti styrkjum. Allir sem koma að útsendingunni leggja átakinu lið í sjálfboðavinnu. Þátturinn er í opinni dagskrá.