RAGGA
Ragnhildur Magnúsdóttir hefur unnið sem útvarps- og sjónvarpskona síðan 2004. Hún skrifaði, framleiddi og leikstýrði heimildamyndinni From Oakland to Iceland (2008) sem var sýnd meðal annars á vegum MTV. Þar áður vann hún við framleiðslu auglýsinga og myndbanda og hefur verið í auglýsingalestri og röddum fyrir ýmis fyrirtæki síðan 2002, bæði á ensku og íslensku. Ragnhildur bjó í Kalíforníu í 18 ár og ólst upp við bandaríska fjölmiðla. Dægurmenningin eða „poppið“ er hennar áhugasvið í dagskrárgerð en hún er stjórnmálafræðingur að mennt frá San Francisco State University.
„Stefnumótamenningin á Íslandi hefur breyst mikið og þróast undanfarin ár. Þetta gefur okkur viss tækifæri til að skoða nýja og skemmtilega hluti í þáttunum. Svo er ástin alltaf forvitnileg og leitin að henni í sjálfu sér reynsla sem allir tengja við á einhvern hátt! Markmið okkar er að fá áhugavert fólk í þáttinn og vonandi saman á endanum, einnig að skoða menninguna í heild sinni og skemmta Íslendingum með nýrri og ferskri nálgun á ástarmálunum,” segir Ragga.
TOBBA
Þorbjörg Marinósdóttir er 25 ára fjölmiðlafræðingur með BA-gráður frá The University of Derby. Hún er blaðakona hjá Séð og Heyrt og heldur úti einu vinsælasta blogginu á DV.is sem fjallar um samskipti kynjanna með broslegum hætti. Von er á fyrstu skáldsögu hennar á árinu sem fjallar um einhleypa konu á Íslandi sem kemst oft í hann krappan í samskiptum sínum við karlmenn og kokteila.
„Íslensk stefnumótamennin hefur þróast hratt síðasliðin ár og stefnir í gott ár fyrir þá sem leita af ástinni. Í dag takmarkast makaleit ekki aðeins við skemmtistaðabrölt þar sem vefir á borð við facebook auðvelda fólki að kynnast og margir eru opnari fyrir óhefðbundnum leiðum við að kynnast hinu kyninu. Stundum er líka nóg að segja bara hæ og brosa!“ segir Tobba.