- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning



HA?

Föstudagar kl. 21:15


HA? er ný tegund af spurningaþætti þar sem skemmtanagildið skipar stærstan sess. Hér skipta stigin ekki öllu máli heldur leitin og leiðin að rétta svarinu. Markmiðið er ekki að safna sem flestum stigum, heldur að skemmta áhorfendum í sal og þeim sem heima sitja.  Og vonandi fræða um leið!
 
Umsjónarmaður þáttarins er leikarinn góðkunni Jóhann G. Jóhannsson (Jói G.) en honum til halds og trausts er Sólmundur Hólm. Munu þeir fá til sín góða gesti í hverri viku til að taka þátt í fjörinu.
 
Höfundur spurninga er hinn geðþekki sagnfræðingur og Luton Town aðdáandi, Stefán Pálsson.
 
Jói G. lýsir inntaki þáttarins og starfssviði sínu svona:  „Spurningarnar eru margar ómögulegar og ósanngjarnar og leitin að rétta svarinu því margslungin og háskaleg!   

Ég mun því að eigin geðþótta ekki síður umbuna þátttakendum fyrir að vera áhugaverðir og skemmtilegir frekar en klárir og krúttlegir.”

Þetta er önnur sería af Ha? en sú fyrri sló vægast sagt í gegn síðasta vetur.

Jói G.

Jóhann G. Jóhannsson eða Jói G. eins og hann er kallaður, hefur starfað sem atvinnudansari, tónlistarmaður og leikari um árabil. Hann er löngu orðinn landsþekktur en frægðarsól hans tók að rísa strax á níunda áratugnum þegar hann lék Júlla smala á eftirminnilegan hátt í Nonna og Manna. Jói hefur leikið í yfir þrjátíu leikritum hér á landi og erlendis. Hann hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsmynda auk auglýsinga og útvarpsþátta. Jói er sniðinn í hlutverk þáttastjórnanda enda er hann með sjónvarpskinnbein og höku, skörp augu en þó góðleg, stjórnar með járnkrumlu þegar þess er þörf en er glaðlyndur, sveigjanlegur og sanngjarn þegar svo ber undir.


 

Sólmundur Hólm

Sólmundur Hólm er fæddur þann 14. júlí árið 1983. Hann gekk í Langholtsskóla og Menntaskólann við Sund. Hann hefur unnið mikið sem blaðamaður og meðal annars starfað á Fréttablaðinu, Vísi.is og DV auk þess sem hann ritstýrði vikuritinu Sirkus um tíma. Haustið 2006 ákvað hann að læra viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stefndi á að eignast Range Rover innan við hálfu ári eftir útskrift. Forsendur breyttust, Sólmundur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur vorið 2009 - tæpu ári eftir hrun - og ekur um á 2001 árgerð af Toyota Rav4. Hann er eftirherma, skemmtikraftur og rithöfundur en hann sendi frá sér sína fyrstu bók, Sjúddirarí rei - Endurminningar Gylfa Ægissonar, árið 2009. Sóli Hólm er umfram allt ákaflega glaðlyndur piltur. Hann er kappsamur liðstjóri en afar þægilegur í samskiptum.


Stefán

Stefán fékk spurningabakteríuna þegar Trivial Pursuit kom fyrst út á íslensku árið 1985 og hefur ekki losnað við hana síðan. Hann hefur tekið þátt í ýmiskonar spurningaleikjum, m.a. framhaldsskólakeppninni Gettu betur sem keppandi, þjálfari og dómari. Hann var aðalhöfundur spurningaspilsins Spark og sögulegra samnefndra sjónvarpsþátta á SkjáEinum.
Stefán er sagnfræðingur, Framari og stuðningsmaður Luton Town í enska boltanum. Hann býr í Norðurmýri. Stefán er spurningaperri af guðs náð og einstaklega naskur á forvitnilegar staðreyndir og erfiðar en skemmtilegar spurningar.

Næsti þáttur

Föstudagur 24. febrúar kl. 21:55 Gestir kvöldsins að þessu sinni eru þeir Jóhannes Haukur Jóhannesson, Pétur Örn Guðmundsson og Atli Þór Albertsson Myndbrot úr næsta þætti

Síður Skjásins


Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is