- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning



HA?

Föstudagar kl. 21:15


Fréttatímaspurning vikunnar

 

Sería 2 - þáttur 13

SPURNING:

 

Stórfyrirtækið Nestlé er einn umsvifamesti framleiðandi gæludýrafóðurs í heiminum. Auglýsing fyrirtækisins fyrir hundamat fyrr á þessu ári er talin brjóta blað í sögu auglýsinga í heiminum. Í hverju fólst það?

SVAR:

 

Sería 2 - þáttur 12:

SPURNING:

Árið 1947 varð bylting í íslenskum handknattleik þegar sænskt lið kom hingað í heimsókn. Liðið vann alla leiki sína stórt, enda lék það nýstárlegt leikkerfi sem Íslendingar áttu eftir að læra. Í hverju fólst það? 

SVAR:

 

Allir sænsku leikmennirnir léku bæði sókn og vörn, í stað þess að hálft liðið ýmist biði í vörninni eða héngi frammi meðan boltinn var allt annars staðar.

 

Sería 2 - þáttur 11:

SPURNING:

Skoðanakannanir í Skotlandi hafa um langt árabil sýnt fram á sömu niðurstöðu: að Skotar séu ekki til í að slíta konungssambandinu við Bretland og stofna sjálfstætt lýðveldi. Þó sýna sömu kannanir að einn atburður - sem tengist fyrrum mjólkurpóstmanni frá Edinborg - gæti breytt þeirri afstöðu.  Hvaða atburður væri það?

SVAR:

Í ljós kom að steinninn hafði ekki að geyma fornar rúnir, heldur jökulrákir. Finnur lét því ímyndunaraflið hlaupa með sig í gönur.

 

Sería 2 - þáttur 10:

SPURNING:

Íslenski fornfræðingurinn Finnur Magnússon þótti vinna mikið afrek á fyrri hluta nítjándu aldar þegar honum tókst að lesa texta úr sænskum rúnasteini sem engum öðrum hafði tekist að skilja. Hann skrifaði mörghundruð síðna bók um rannsóknina en í dag þykir verkið afar vandræðalegt fyrir minningu þessa mikla fræðimanns. Hvers vegna?

SVAR:

Í ljós kom að steinninn hafði ekki að geyma fornar rúnir, heldur jökulrákir. Finnur lét því ímyndunaraflið hlaupa með sig í gönur.

 

Sería 2 - þáttur 9:

SPURNING:

Samkvæmt Heimsmetabók Guinness er dómkirkjan í borginni Yamoussoukro á Fílabeinsströndinni stærsta kirkja í heimi. Hún þekur 30 þúsund fermetra og er stærri en Péturskirkjan í Róm. Hvað er óvenjulegast við þessa risastóru kirkju sem byrjað var að reisa árið 1989?

SVAR:

Yamoussoukro er í dag litlu fjölmennari en Reykjavík. Kirkjan var hugarsmíð forseta landsins sem ákvað að reisa hana í litla þorpinu þar sem hann fæddist. Hún er nánast alltaf mannlaus.

 

Sería 2 - þáttur 8:

SPURNING:

Þriðju Ólympíuleikar nútímans fóru fram árið 1904. Mikil spenna var fyrir Maraþonhlaupinu, þar sem Bandaríkjamaðurinn Frederick Lordz kom fyrstur í mark. Honum var fagnað sem hetju en síðar var hann sviptur titlinum með skömm. Hvers vegna?

SVAR:

Lordz hafði gefist upp snemma í hlaupinu og sest inn á veitingastað til að fá sér í svanginn. Að því loknu húkkaði hann sér far með bíl að leikvanginum, þangað sem hann kom á undan fyrstu hlaupurunum og ákvað að gera að gamni sínu.

 

Sería 2 - þáttur 7:

SPURNING:

Aþenubúinn Drakó var uppi á sjöundu öld. Hann er einn kunnasti lögspekingur sögunnar þótt nafn hans sé í dag einkum tengt við ósveigjanleika og harða dóma. Drakó dó með mjög sviplegum hætti. Hvernig gerðist það?

SVAR:

Aþenubúar vottuðu mönnum virðingu sína með því að kasta yfirhöfnum sínum yfir þá. Eftir ræðu í leikhúsi borgarinnar sló hann svo í gegn að hann var þakin flíkum og kafnaði.

 

Sería 2 - þáttur 6:

SPURNING:

Indland var skráð til leiks í úrslitakeppni HM í knattspyrnu árið 1950. Á síðustu stundu ákvað liðið hins vegar að draga sig úr keppni. Hvernig stóð á því?

SVAR:

Indverjar voru ósáttir við að leikmenn máttu ekki spila berfættir.

 

Sería 2 - þáttur 5:

SPURNING:

Fyrsta flugfreyjan hóf störf árið 1912. Í fyrstu voru ströng skilyrði um menntun flugfreyja en frá þeim var horfið á árum seinni heimsstyrjaldarinnar með þeim afleiðingum að flugfreyjum fjölgaði mjög. Hver voru þessi ströngu skilyrði?

SVAR:

Upphaflega var gerð krafa til þess að flugfreyjur væru menntaðar hjúkrunarkonur.

 

Sería 2 - þáttur 4:

SPURNING:

Bikini-sundföt komu á markað árið 1946 og voru kennd við eyju í Kyrrahafi. Ekkert í sögu Bikini-eyjunnar tengdist þó sérstaklega sundfötum af þessu tagi. Hvers vegna varð nafnið fyrir valinu?

SVAR:

Bandaríkin stóðu fyrir tilraunum með kjarnorkusprengjur á Bikinidagana áður en sundfötin komu á markað. Nafnið Bikini var því mikið í fréttunum og framleiðandinn ákvað því að stökkva á nafn sem allir höfðu heyrt.

 

Sería 2 - þáttur 3

SPURNING:

Þjóðverjar eru kunnir fagurkerar þegar kemur að mat og drykk. Þar er vinsælt

að drekka áfenga blöndu sem kölluð er „Kórea“. Hún samanstendur af tveimur hráefnum.

Annars vegar af Kóka kóla – en hver er hinn hluti blöndunnar?

SVAR:

Rauðvín

 

Sería 2 - þáttur 2:

SPURNING:

Árið 1995 kynnti knæpa í Aberdeen til sögunnar glænýjan skyndibita sem átti eftir að fara sigurför um Skotland og er nú fáanlegur víða þar í landi - næringarsérfræðingum til sárrar armæðu. Hver var skyndibitinn?

SVAR:

Djúpsteikt Mars súkkulaði.


Síður Skjásins


Skjárinn , aðrar síður

Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is