Önnur sería af gamanþáttaröðinni Hæ gosa verður frumsýnd á Skjá einum í september.
Leikstjóri er hinn 24 ára Arnór Pálmi Arnarson en með aðalhlutverkin í Hæ gosa fara bræðurnir Árni Pétur og Kjartan Guðjónssynir. 
„Þetta fjallar um hversdagslegt líf tveggja bræðra. Þeir eru að glíma við alls konar hluti eins og að eldast og breyttan áhuga kvenna á þeim," segir Arnór Pálmi.
Leikstjórinn Þórhallur Sigurðsson túlkar pabba þeirra, sem er áberandi í þáttaröðinni. Hann fer á dvalarheimili aldraðra eftir að mamma þeirra deyr og eiga þeir bræður erfitt með að sætta sig við það.
María Ellingsen og Helga Braga Jónsdóttir leika eiginkonur bræðranna og vini þeirra leika Hjálmar Hjálmarsson og Hannes Óli Ágústsson.
Að sögn Arnórs er húmorinn í Hæ gosa hversdagslegur en undirliggjandi er hann ögrandi og svartur í anda Klovn-þáttanna dönsku. Upptökur fóru fram bæði á Íslandi og í Færeyjum og hefur Færeyska Ríkisjónvarpið fest kaup á sýningarétt að þáttunum.
Sprenghlægilegir en um leið óþægilegir gamanþættir um bræðurna Víði og Börk og fólkið í lífi þeirra. Faðir þeirra kom nýlega út úr skápnum og vinur þeirra Krummi rekur líkbílaþjónustu. Síðustu þáttaröð lauk með hvelli þegar Fríðborg, eiginkona Barkar, stakk af til heimalands síns, Færeyja og feðgarnir ákveða að elta.
2. þáttaröð, 8 þættir, 30 mínútur