- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning


Um okkur

Þátturinn

 

Hönnunar- og lífstílsþátturinn Innlit/Útlit er snúin aftur á Skjá Einn!

Eins og áður er þátturinn sýndur á þriðjudagskvöldum kl 20:35.

Það er þær Sesselja Thorberg og Bergrún Íris Sævarsdóttir sem stýra skútunni á ný en þáttaröð þeirra í fyrra vakti mikla lukku.

Sesselja og Bergrún munu leggja áherslu á spennandi hönnun, húsráð og sniðugar lausnir fyrir heimilið með áherslu á notagildi. Nýtt og notað verður saman í bland og Fröken Fix verður á sínum stað með sín hagnýtu og skemmtilegu ráð. 

Sesselja

Sesselja Thorberg hefur starfað lengi á ýmsum sviðum hönnunar og innanhússráðgjafar.  Eftir útskrift frá hönnunar & arkitektadeild Listaháskólans árið 2003 starfaði hún við Innlit Útlit með Völu Matt á SkjáEinum í tæp 3 ár. Færði hún sig svo um set og hélt áfram samstarfi með Völu á 365 miðlum en þá með hönnunar og lífsstílsþáttinn Veggfóður. Í lok árs 2006 sagði Sesselja skilið við sjónvarpið og hóf störf á arkitektastofu í byrjun árs 2007 þar sem hún starfaði næstu 2 árin. Sesselja  stundaði þó innanhússráðgjöf í hjáverkum í gegnum allan þennan tíma.

Árið 2010 stofnaði Sesselja Fröken Fix – innanhússráðgjöf þar sem hún leggur meðal annars áherslu á að aðstoða fólk með heimili sín á ódýran og hagkvæman hátt.

Nú er svo komið að Sesselja hefur snúið aftur í sjónvarpið með fullt fangið af reynslu sem án efa mun gagnast áhorfendum í því að sjá heimili sín í nýju ljósi.

 

Bergrún

Bergrún Íris er ný í sjónvarpi og hefur lengi haft brennandi áhuga á öllu sem við kemur hönnun og kemur því með ferska nálgun á íslenska þáttagerð.

Hún heldur úti hönnunarblogginu Óskalistinn en þar eins og í Innlit Útlit, eru sniðugar lausnir, endurnýting gamalla hluta, nýtt notagildi og "gerðu það sjálfur" hugmyndafræðin í forgrunni.

Bergrún Íris nemur teikningu á diplomastigi við Myndlistaskólann í Reykjavík en hefur einnig fiktað við leikmyndahönnun og -smíð. Hún er auk þess með BA gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands og var um tíma í skiptinámi í hinni dásamlegu Kaupmannahöfn.


Hafa samband


: *
: *
: *

Síður Skjásins


Skjárinn , aðrar síður

Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is