Fimmtudagar kl. 21:30
Johnny NAZ fer aftur á stjá eftir áralangt hlé frá kastljósi fjölmiðla og áreiti íslenskra unglinga.
Eins og Makaveli forðum setti hann dauða sinn á svið í samvinnu við annálaðan gleðigosa til að geta unnið að æðra takmarki. Þar sem Johnny þótti nóg komið af hlaupkenndu háttalagi íbúa eyjunnar bláu, fluttist hann alfarið til eyjunnar hvítu, IBIZA.
Í ljósi nýliðinna atburða hér uppi á Íslandi og víða, þar sem allir virðast vera með allt lárétt og lóðrétt niðrum sig hefur Johnny ákveðið að taka til sinna ráða og vísa Mörlendingum veginn að varanlegra og betra lífi að ÍBÍZNESKRI fyrirmynd. Johnny ákveður líka að skoða löndin þar í kring; til að taka til, gera upp og stela því sem nothæft er til þess að fullkomna formúluna að nýja lýðveldinu eða ÍBÍZLANDI eins og hann kýs að kalla hið nýja Ísland.