- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning


Lífsaugað


Lífsaugað

Þekktasti miðill Íslands, Þórhallur Guðmundsson, er mættur aftur til leiks í sjónvarpi með þátt sinn Lífsaugað.

Í þáttunum er Þórhallur með skyggnilýsingar fyrir gesti sína í sal og sjónvarpsáhorfendur og freistar hann þess að komast í samband við liðna ástvini og ættingja gesta sinna.

Þegar Þórhallur er búinn að skyggnast inn í sálarheim gestanna ræðir Guðrún Möller við þá um frammistöðu miðilsins.

Íslendingar hafa ávallt haft mikinn áhuga á andlegum málefnum og margir leita til miðla og spákvenna þessa dagana.

Líklega hefur enginn verið betri í að færa landsmönnum fréttir að handan síðustu áratugi en Þórhallur miðill og það er spennandi að fylgjast með hverjir kíkja í heimsókn.


Síður Skjásins


Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is