
Hrefna Rósa Sætran er 31 ára og í fremstu röð íslenskra matreiðslumeistara. Hún er eigandi Grillmarkaðsins og Fiskmarkaðsins, sem eru meðal flottustu og vinsælustu veitingastaðir landsins.
Grillmarkaðurinn opnaði í júní 2011 og þar hefur hvert borð verið bókað öll kvöld síðan. Á Grillmarkaðnum er unnið mikið samstarf við bændur landsins þar sem aðal hráefnið í diskunum er alltaf hágæða íslensk afurð. Staðurinn er ungur og á eflaust eftir að fá fjölda viðurkenninga, en hann var þó valinn besti veitingarstaðurinn af Gestgjafanum núna í ár.
Fiskmarkaðurinn hefur vakið mikla athygli frá því hann var opnaður fyrir fjórum árum og hlotið frábæra dóma; jafnt hjá innlendum sem erlendum matargagnrýnendum og tímaritum. Fiskmarkaðurinn komst meðal annars á „Hot List Tables 2008“ hjá Condé Nast Traveler og var valinn einn af heitustu nýju veitingastöðunum í heiminum árið 2008 hjá Food and Wine.
Á Fiskmarkaðnum leitar Hrefna í austur þegar kemur að bragð og stíl og býður upp á það besta frá Íslandi í bland við það besta frá Austurlöndum. Eins og nafnið gefur til kynna er fiskur í fyrirrúmi en einnig er boðið upp á úrval af kjöti.
Hrefna lærði kokkinn á Apótekinu. Hún var í fyrsta unglingalandsliði Íslands og var yfirkokkur á veitingastaðnum Maru á meðan hún var ennþá að læra. Þegar Hrefna hóf störf 2004 á Sjávarkjallaranum var hún fljót að vinna sig upp og tók við stöðu yfirkokks þar ári síðar.
Hrefna var fyrst valin í landslið íslenskra matreiðslumeistara árið 2004 og var þá yngsti meðlimur kokkalandsliðsins. Hún hefur keppt bæði í heimsmeistarakeppni og á Ólympíuleikum í matreiðslu fyrir Íslands hönd. Í október 2008 var hún í kokkalandsliðinu sem stóð sig frábærlega á Ólympíuleikunum í Erfurt í Þýskalandi en þar hlaut liðið tvenn gullverðlaun og tvenn silfurverðlaun, sem er besti árangur sem íslenskir matreiðslumeistarar hafa náð í alþjóðlegri keppni. Hrefna þjálfaði unglingalandslið Íslands í þeirra fyrstu keppni árið 2007 en þar vann liðið til gullverðlauna.
Hrefna hefur ferðast mikið og heimsótt yfir 20 Michelin staði. Þegar hún var að undirbúa opnun Fiskmarkaðarins vann hún á toppstöðum í London og New York, til dæmis Nobu Berklay og Megu, til að upplifa nýja hluti og læra meira.