- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning


Matarklúbburinn

Meistarakokkurinn og veitingahúsaeigandinn Hrefna Rósa Sætran er mætt aftur til leiks í sjöundu seríunni af Matarklúbbnum.

Í þáttaröðinni mun Hrefna Rósa  heimsækja fólk sem á eitt sameiginlegt - ást á mat. Öll eru þau á misjöfnum aldri og elda af mismunandi ástæðum.  Soffía matarbloggari elskar að finna upp nýja rétti og deila með fólki á internetinu, Guðný Ebba hefur mest gaman af því að elda hollan mat fyrir ungabörn og Jakob er kokkur af gamla skólanum sem finnst gaman að elda gamla hefðbundna rétti. Frá þessum og fleiri ástríðukokkum  fær Hrefna Rósa innblástur sem mun skila sér í skemmtilegum réttum í eldhúsinu. 

Þúsundir Íslendinga hafa skráð sig í Matarklúbbinn og fá uppskriftir Hrefnu sendar eftir hvern þátt.

Matarklúbburinn er á dagskrá á þriðjudagskvöldum kl. 20:10


          

Síður Skjásins


Skjárinn , aðrar síður

Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is