Í september hefjast sýningar á nýjum íslenskum þáttum sem fjalla um óupplýst íslensk mál og af þeim er nóg að taka. Þættirnir verða 7 talsins í heimildamyndaformi, 25 minútur að lengd hver þáttur, framleiddir af fyrirtækinu Majestic sem framleitt hefur meðal annars Málið með Sölva.
Þættirnir verða byggðir á sögum íslendinga af óútskýranlegum atburðum sem hafa átt sér stað. Flestir hafa einhverja sögu að segja af óútskýranlegum atvikum og tengslum við annan heim. Í þáttunum verður rýnt í þessar sögur og þær sagðar á myndrænan hátt.