Singing Bee er nýr, íslenskur tónlistar og skemmtiþáttur þar sem fjörið ræður ríkjum. Íslensk fyrirtæki keppa í skemmtilegum leik þar sem keppendur þurfa ekki að kunna að syngja heldur einungis að kunna textann við vinsæl lög. Singing Bee er skemmtilegur fjölskylduþáttur sem allir heima í stofu geta tekið þátt í. Kynnir þáttarins er Jónsi og hljómsveitin Buff sér um tónlistina.
Leikurinn fer þannig fram að hljómsveit þáttarins byrjar að spila og syngja lag en þegar hljómsveitin stöðvar skyndilega eiga keppendur að taka við og fylla í eyðurnar með réttum texta. Við þetta myndast mikil spenna sem smitast alla leið heim í stofu. Þátturinn gengur út á að slá út hvern keppandann á fætur öðrum þar til einn stendur eftir og verður Singing Bee meistari kvöldsins.
Singing Bee er byggður á bandarískri fyrirmynd sem hefur farið sigurför um heiminn. Þátturinn leit fyrst dagsins ljós í Bandaríkjunum á sl. ári og sló strax í gegn en síðan þá hafa sjónvarpsstöðvar í um 30 löndum hafið framleiðslu á þáttunum.
Laugardagar kl. 22:15
Sunnudagar kl. 18:45
Þriðjudagar kl. 19:20.
Kynnir þáttarins er Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi, söngvari hljómsveitarinnar Í svörtum fötum. Jónsi er einn kunnasti og vinsælasti söngvari landsins og mikill stuðbolti. Hann vakti fyrst athygli þegar Í svörtum fötum kom fram á sjónarsviðið í upphafi árs 1999. Fyrsta smáskífa sveitarinnar, Nakinn, kom henni á kortið vorið 2001.
Síðan hefur leiðin legið upp á við og Jónsi var tilnefndur sem söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaunum 2003. Sama ár lék hann í söngleiknum Grease sem naut mikilla vinsælda. Jónsi var fulltrúi Íslands í Eurovision árið 2004 með lagið Heaven. Í sjónvarpi hefur Jónsi m.a. verið kynnir í þáttunum Skólahreysti og á úrslitkvöldi Ungfrú Ísland sl. vor.
Hin landsþekkta stuðhljómsveit Buff verður hljómsveit þáttarins. Hún snýr nú aftur til uppruna síns því hljómsveitin var stofnuð á SkjáEinum í kringum þáttinn „Björn og félagar“ á upphafsárum SkjásEins. Eftir að þáttunum lauk hélt hljómsveitin áfram og varð vinsæl dansleikjahljómsveit. Árið 2005 var Buff ráðin sem húsbandið í þáttunum „Það var lagið“ sem Hemmi Gunn stýrði á Stöð 2. Sveitin er þekkt fyrir að skemmta sér og áhorfendum vel og á auðvelt með að spila tónlist fyrir alla aldurshópa.
BaseCamp annast framleiðslu Singing Bee þáttanna fyrir SkjáEinn. BaseCamp er framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í upptökum fyrir sjónvarp, bæði á auglýsingum og þáttum. Undanfarin ár hefur fyrirtækið séð um Gettu betur, Söngvakeppni Sjónvarpsins, Söngkeppni framhaldsskólanema, Ungfrú Reykjavík og Ungfrú Ísland.