- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning


Reglurnar í Singing Bee

Uppbygging leiksins

Dómari keppninnar er allsráðandi og dæmir hart ef rangt er farið með textana. Dómari notar hljóðmerki svo allir heyri þegar einhverjum verður á.

 

Í salnum eru þátttakendur frá tveimur fyrirtækjum.  Á meðan upphafslagið er sungið þá gengur þáttastjórnandinn á meðal gesta og velur 6 manns af þeim 10 sem eru tilnefndir frá hvoru fyrirtæki.  Þeir keppendur sem eru valdir fara upp á svið og raða sér þar í röð eftir því sem þeir eru valdir.

 

Í fyrsta hluta þáttarins eru  sex keppendur  frá öðru fyrirtækinu  sem keppa þar til einn er eftir sem mun komast í einvígi.  Síðan keppa sex frá hinu fyrirtækinu um það sama.  Að lokum leiða sigurvegarar úr hvorum hópi saman hesta sína í einvígi.  Sigurvegarinn úr því einvígi er krýndur Singing Bee meistari og fær tækifæri til að vinna til peningaverðlauna. 

 

Lota 1 - inni í lagi (ein setning).

Þáttastjórnandi kynnir ártal, nafn á hljómsveit (Artista) og nafn á lagi og hljómsveitin byrjar að spila og syngja.  Keppendur taka við af söngvurum og syngja  áfram og klára setninguna.

Keppandinn hefur að hámarki 5 sekúndur til að byrja eða halda áfram ef hann stoppar. Hljóðmerki verður gefið er tíminn er liðinn. Sjá hér fyrir neðan 5 sek. klukka.

Þeir þrír sem geta sungið réttan texta komast áfram, hinir þrír eru úr leik og fara af sviði.

ATH- það er ekki öruggt að allir sex fái tækifæri til að syngja, þrír fyrstu sem geta rétt komast áfram.

Ef dómari metur að keppandi syngi rangt, þá fær næsti keppandi að reyna við sama lagið.

Ef enginn keppandi af þessum 6 getur sungið rétt þá er valið nýtt lag og þáttastjórnandinn kynnir það með ártali, nafni á hljómsveit og nafni á lagi.

Þeir 3 fyrstu sem geta rétt fá að halda áfram í næstu lotu og fá sér sæti í stólum til hliðar á sviðinu.

 

Lota 2 - er mismunandi, um er að ræða „orðarugl“, „karaoke“ og “byrjun á lagi”.  Dómari ákveður hvaða leik á að fara í, í hverjum þætti.  Aðeins einn  af þessum leikjum  er valinn.

 

A.      Orðarugl 

3 keppendur eru á sviði í þeirri röð sem þeir komu upp.

Þáttastjórnandi kynnir nafn, hljómsveit (Artista) og ártal, og hljómsveitin byrjar að spila.

Orð byrja að myndast á skjá út um allt og keppandinn þarf að geta raðað þeim í rétta röð og tekið við af hljómsveitinni þegar hún hættir að spila.

 

Ef aðeins  einn af þremur keppendum getur þetta þá er sá hinn sami sigurvegari  og fer  í einvígið.

Ef tveir keppendur geta rétt og einn rangt, yfirgefur sá sviði sem ekki gat og hinir tveir fá tvö ný lög.

Sá sem getur rétt (dómari) vinnur og fer í einvígið.

Ef allir þrír keppendurnir geta rétt,  eða tveir keppendur syngja rétt fá þeir 3 ný lög.

Ef allir syngja rétt eða rangt í annað skiptið þá er farið í útsláttarkeppni fyrir 3.

Ef tveir geta rétt eða rangt þá er farið í útsláttarkeppni fyrir 2.

Ef einn syngur rétt í seinni umferðinni þá er hann sigurvegari og kemst í einvígið.

 

Ef útsláttarkeppni á milli tveggja 

Þeir tveir keppendur  sem voru jafnir keppa nú um að komast í lokalotuna.

Báðir keppendur eru með bjöllu í hendi og þáttastjórnadi kynnir ártal og nafn á hljómsveit.

Þá er opnað fyrir bjöllurnar og sá keppandi sem er fyrr til að ýta á bjölluna fær að ráða hvort hann syngur sjálfur eða kastar yfir á keppanda B að syngja. Þegar keppandi hefur ákveðið sig þá kynnir þáttastjórnandinn loks nafnið á laginu og hljómsveitin byrjar að leika part úr laginu, þegar hljómsveitin stoppar tekur keppandinn við og syngur heila setningu.  Dómari sker úr um  hvort rétt sé og ef svo er þá kemst sá keppandi áfram í næstu lotu.

Ef A hefur náð bjöllunni fyrst;

Ef A syngur lagið sjálfur og getur rétt, vinnur A.

Ef A syngur vitlaust þá vinnur B

Ef A lætur B fá lagið og B getur ekki rétt þá vinnur A.

En geti B rétt þá vinnur  B.

 

Ef útsláttarkeppni á milli  þriggja

Sama og að ofan, en nú eru þrír keppendur og sá sem er fyrstur til að styðja á bjölluna ræður hvort hann syngur eða varpar laginu á annan hvorn hinna.

Um leið og keppandi er búinn að ákveða hver keppir þá kynnir þáttastjórnandinn nafnið á laginu.

Hljómsveitin byrjar og keppandinn reynir við lagið. 

Ef keppandinn getur rangt  þá er hann/hún úr leik og yfirgefur sviðið.

Þeir tveir keppendur sem eftir eru fara í tveggjamanna  útsláttarkeppni.

Sigurvegarinn fer í einvígið.

 

B.      Karaoke

Keppendur eiga að fylla inn í eyður í söngtexta.  Textinn er fyrir framan keppendur á skjá en það vantar  xxx  orð inn í textann.  Keppendurnir fá nákvæmlega jafnmargar eyður í textanum. Keppandi fær eitt stig fyrir hvert orð sem hann getur rétt.  Sá sem fær flest stig heldur áfram en hinir eru úr leik.  Sá sem heldur áfram tekur sér nú hlé og bíður eftir að taka þátt í einvíginu.

Ef tveir eða þrír keppendur eru jafnir þá er farið í „útsláttarkeppni“.

Keppandi fær ekki refsistig fyrir að syngja „skrifuð“ orð  á skjánum vitlaust!

Hann verður eingöngu að syngja eyðurnar réttar.

Ef jafntefli þá er farið í útsláttarkeppni.

 

C.      Byrjun á lagi

Hljómsveitin  spilar upphafsstóna lags og keppendur syngja fyrstu línuna í laginu. 

Ef aðeins einn  getur rétt þá er hann sigurvegarinn og  kemst áfram í einvígið.

Ef tveir eða þrír syngja rétt þá fá þeir hvor um sig ný lög.

Ef allir syngja rangt þá fá þeir allir ný lög.

Ef allir syngja rétt eða rangt í annað skiptið þá er útsláttarkeppni á milli þeirra.

Ef tveir syngja rétt er útsláttarkeppni á milli þeirra.

Ef einn syngur rétt í seinni umferð þá er hann sigurvegarinn og heldur áfram í einvígið.

 

Í A,B, og C getur verið jafntefli og þá er farið í „útsláttarkeppni“.

 

Eftir lotu  1 og  2 er einn keppandi eftir frá fyritæki A, hann/hún fær sér sæti til hliðar á sviðinu.

Sami leikurinn er leikinn með fyritæki B þar til einn keppandi er eftir.  Þá er komið að  einvígi.

 

Einvígið

Tveir keppendur keppa nú um að komast í lokalotuna og verða Singing Bee meistari kvöldsins.

Þáttastjórnadi kynnir  ártal, nafn á hljómsveit og lagi. Hljómsveitin byrjar að spila og syngja lagið og þegar kemur að viðlagi eða erindi  þá stoppar hljómsveitin og  keppandinn syngjur viðlagið/erindið  einn og óstuddur.

Dómari gefur hljóðmerki ef það er rangt og þáttastjórnandi fer yfir hvaða orð var rangt.

Eftir að báðir keppendur hafa reynt við viðlagið og annar getur ekki þá er hinn Singing Bee meistari kvöldsins.

Ef báðir keppendur geta sungið rétt eða hvorugur getur sungið viðlagið þá eru tvö ný lög reynd. 

Ef báðir keppendur geta  sungið viðlagið þá er jafntefli og farið í „útsláttarkeppni“.

Ef hvorugur keppenda geta sungið  viðlagið í annari umferð þá er farið í „útsláttarkeppni“.

Sá sem vinnur „útsláttarkeppnina“ er sigurvegarinn og fer áfram í peningastigann (Final Count down).

 

5 sek. klukkan

Um leið og hljómsveitin hættir að spila þá fer klukka í gang  sem telur niður í 5 sekúndur.

Ef klukkan fer niður í 0 og keppandinn hefur ekki byrjað að syngja, þá er dæmt rangt og keppandinn er úr leik.

Ef keppandinn hikar eða stoppar eftir að hann byrjar, þá fer klukkan af stað frá 5 og telur niður í 0.

Ef klukkan nær að fara niður í 0 þá er keppandinn úr leik.

 

Peningastiginn (Final Count Down)

Singing Bee meistarinn fær tækifæri til að vinna sér inn peningaverðlaun.

Ártal, nafn á hljómsveit og lagi birtist á skjánum, hljómsveitin spilar part úr laginu og þegar hún stoppar verður keppandinn að taka við og syngja háréttan texta. Hljóðmerki frá dómara gefur til kynna hvort textinn er réttur  eða rangur í flutningi keppandans.

Fyrstu tvær spurningarnar eru 50.000 kr. virði hvor.  Spurningar þrjú og fjögur eru 75.000 kr. virði og fimmta spurningin er 250.000 kr. virði.  Á leiðinni má keppandinn tvisvar sinnum syngja rangt en þegar það gerist í þriðja skiptið er hann úr leik en heldur  bikarnum og þeim peningaverðlaunum sem hann hefur áunnið sér.

 

 



Síður Skjásins


Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is