- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning


Þátttakendur

Í hverjum þætti mætast tvö íslensk fyrirtæki. Hvert fyrirtæki tilnefnir 10 þátttakendur og síðan eru 6 þeirra valdir til að taka þátt í leiknum. Sigurvegari þáttarins hlýtur að launum Singing Bee bikarinn og titilinn Singing Bee meistari. Sigurvegarinn getur síðan unnið sér inn allt að hálfri milljón króna með því að klifra upp peningastigann í lok þáttarins.

 

1. ÞÁTTUR

SÍMINN og VODAFONE

Símafyrirtækin SÍMINN og VODAFONE mættust í fyrsta þættinum og eftir fjöruga keppni stóð MARGRÉT HANNA BIRGISDÓTTIR, starfsmaður SÍMANS uppi sem sigurvegari.

 

2. ÞÁTTUR

SJÓVÁ og ÍSLENSK AMERÍSKA

Í öðrum þætti mættust SJÓVÁ og ÍSLENSK AMERÍSKA. Að lokum sigraði ÓLÖF ÁSGEIRSDÓTTIR, starfsmaður ÍSLENSK AMERÍSKA og hlaut bikarinn sem Singing Bee meistari kvöldsins.

 

3. ÞÁTTUR

BYKO og HÚSASMIÐJAN

Í þriðja þættinum mættust BYKO og HÚSASMIÐJAN. Singing Bee meistari kvöldsins var SIGURÐUR SVAVARSSON, starfsmaður HÚSASMIÐJUNNAR. Hann sýndi glæsilega takta á sviðinu.

 

4. ÞÁTTUR

MORGUNBLAÐIÐ og 24 STUNDIR

 Í fjórða þætti mættust MORGUNBLAÐIÐ og 24 STUNDIR. Það var ÞRÖSTUR EMILSSON sem fagnaði sigri fyrir hönd 24 STUNDA og hlaut bikar sem Singing Bee meistari kvöldsins.

 

5. ÞÁTTUR

VÍFILFELL og VÍS

Í fimmta þættinum mætti starfsfólk VÍFILSFELLS og VÍS í Singing Bee. Það var ANNA RÓS ÍVARSDÓTTIR starfsmaður VÍS sem kom, sá og sigrað með glæsibrag.

 

6. ÞÁTTUR

IKEA og RÚMFATALAGERINN

Í sjötta þættinum voru það IKEA og RÚMFATALAGERINN sem áttust við. Singing Bee meistari kvöldsins var STELLA INGIBJÖRG GUNNARSDÓTTIR starfsmaður RÚMFATALAGERSINS. 

 

7. ÞÁTTUR

NÝHERJI og EJS

Í sjöunda þætti mættust NÝHERJI og EJS í skemmtilegri keppni. Sigurvegari kvöldsins var MAGNÚS GUÐJÓNSSON starfsmaður Nýjerja sem hlaut að launum bikar og nafnbótina Singing Bee meistarinn. 

 

8. ÞÁTTUR

DOMINOS og McDONALDS

Það var starfsfólk DOMINOS og McDONALDS sem spreytti sig á söngtextum. Sigurvegari kvöldsins var DAGNÝ FJÓLA JÓHANNSDÓTTIR sem starfar hjá DOMINOS og hún fór heim með Singing Bee bikarinn og nafnbótina Singing Bee meistarinn.

 

NÆSTI ÞÁTTUR

OLÍS og N1

 

Föstudaginn 21. nóvember verður síðan skemmtilegur þáttur með broti af því besta úr keppnum fyrirtækjanna og áður ósýnt efni sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Föstudaginn 28. nóvember er síðan komið að uppgjöri allra Singing Bee meistaranna en þá mætast sigurvegarar allra þáttanna.

 

 

 

 


Síður Skjásins


Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is