Spriklandi ferskur skemmtiþáttur í umsjón Þorsteins Guðmundssonar sem fær til sín góða gesti. Hljómsveitin Svalbarði spilar dillandi danstónlist ásamt söngkonunni Ágústu Evu Erlendsdóttur sem einnig bregður sér í ýmis gervi ásamt Þorsteini í nýstárlegum leiknum atriðum.