Kæri viðskiptavinur
Við hvetjum þig til að kynna þér vel eftirfarandi skilmála vegna sjónvarpsáskriftar þinnar en það fyrirbyggir misskilning um réttindi og skyldur beggja aðila og stuðlar jafnframt að góðum samskiptum í framtíðinni.
Ef einhverjar spurningar vakna er varða áskrift þína má hafa samband við Skjáinn í síma 595 6000. Ef tæknileg vandamál koma upp má hafa samband við 800 7000 vegna myndlykla frá Símanum og 1414 ef myndlykillinn er frá Vodafone. Einnig má nálgast frekari upplýsingar á vefsíðu Skjásins, www.skjarinn.is.
1) Skjárinn veitir áskrifanda aðgang að sjónvarpsdagskrá sinni að uppfylltum þeim skilyrðum og að teknu tilliti til þeirra fyrirvara sem greinir í skilmálum þessum. Teljast skilmálar þessir hluti af samningi Skjásins og áskrifanda um áskrift að sjónvarpsútsendingum Skjásins og þeirra erlendu sjónvarpsstöðva sem Skjárinn sendir út.
2) Áskriftargjald er innheimt í hverjum mánuði. Áskriftargjald ber áskrifanda að greiða í samræmi við neðangreindar reglur.
3) Reikningstímabil miðast við almanaksmánuð og er útgáfudagur reikninga í lok hvers mánaðar. Gjalddagi reikninga er 20. næsta mánaðar eftir útgáfudag og eindagi er að jafnaði 2. næsta mánaðar eftir gjalddaga.
4) Sé reikningur ekki greiddur á eindaga skal áskrifandi greiða dráttarvexti, eins og þeir eru ákveðnir samkvæmt III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá og með gjalddaga til greiðsludags. Innheimtuviðvörun er send tveimur dögum eftir eindaga kröfu en sérstakt gjald vegna innheimtuviðvörunar leggst á kröfu við útsendingu hennar.
5) Athugasemdir skulu gerðar við útgefna reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga, ella telst reikningur samþykktur. Hafi athugasemdir borist eftir eindaga og atvik réttlæta með ótvíræðum hætti þær tafir sem urðu, skal eins og frekast er unnt taka afstöðu til þeirra athugasemda.
6) Uppsögn áskriftar tekur gildi við upphaf næsta mánaðar eftir að tilkynning um uppsögn berst Skjánum. Kjósi áskrifandi að segja upp áskrift sinni skal tilkynning um uppsögn berast Skjánum í síma 595 6000 fyrir næstsíðasta dag hvers mánaðar. Berist tilkynning um uppsögn ekki innan ofangreindra tímamarka ber áskrifanda einnig að greiða áskriftargjald fyrir næsta mánuð.
7) Áskrifandi er aðeins bundinn til að greiða áskriftargjald í einn mánuð í senn, sbr. þó einnig 6. gr. þessa skilmála.
8) Áskrifendur geta valið um þrjár greiðsluleiðir.
a. Beingreiðslur af debetkorta/tékkareikningi áskrifanda.
b. Boðgreiðslur með kreditkorti áskrifanda.
c. Netreikningur sem greiddur er í heimabanka áskrifanda.
Skjárinn sendir ekki reikninga eða greiðsluseðla á pappír til áskrifenda. Óski áskrifandi eftir að fá greiðsluseðil á pappír sendan, getur hann haft samband við þjónustufulltrúa í síma 800 7000. Fyrir hvern greiðsluseðil á pappír sem sendur er áskrifanda greiðist seðilgjald að upphæð 250 krónur. Fyrir hverja færslu skv. lið a. til c. áskrifanda greiðist kostnaður að upphæð 60 krónur. Þessi gjöld kunna að taka breytingum í takt við almenna verðlagsþróun.
9) Áskrifanda er óheimilt að gera afrit af myndefni úr sjónvarpsútsendingum nema þá því aðeins að slík afrit séu ætluð til einkaafnota á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins og að öllu leyti í samræmi við lög og reglur.
10) Áskriftarbúnaður og myndlyklar eru í eigu dreifingaraðila sjónvarpsmerkis Skjásins og lýtur skilmálum þeirra.
11) Skjárinn ábyrgist ekki útsendingar- eða móttökuskilyrði eða gæði flutningsmerkis.
12) Skjárinn áskilur sér rétt til þess að breyta án fyrirvara þeirri sjónvarpsdagskrá sem kynnt hefur verið eða breyta samsetningu og fjölda þeirra sjónvarpsstöðva sem innifaldar eru í áskriftarpökkum Skjásins.
13) Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum er Skjánum heimilt, án fyrirvara, að stöðva útsendingu á dagskrá miðla sinna til hans og eftir atvikum að beita öðrum úrræðum þeim sem Skjánum eru heimil samkvæmt lögum.
14) Skjárinn áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Slíkar breytingar skulu kynntar með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara á heimasíðu Skjásins sem er að finna á netslóðinni www.skjarinn.is.
15) Mál sem kunna að rísa vegna þessara skilmála má reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Áskriftarskilmálar þessir gilda frá og með 1.apríl 2011.