Hvað kostar áskrift?
Mánaðarlegt áskriftargjald fyrir SkjáEinn er samkvæmt auglýstri verðskrá hverju sinni, enginn binditími er á áskriftum. Segja þarf upp áskrift eigi síðar en 2 dögum fyrir mánaðarmót annars tekur uppsögnin gildi næsta mánuð á eftir.
Hvað þarf ég að gera til að ná SkjáEinum í læstri dagskrá?
Útsending SkjásEins mun verða aðgengileg bæði í gegnum Sjónvarp Símans og Digital Ísland hjá Vodafone þannig að ekki mun verða þörf á að skipta út þeim myndlyklum sem fyrir eru á heimilinu.
Hvernig kaupi ég áskrift að SkjáEinum?
Með því að fara á skjarinn.is og skrá sig fyrir áskrift eða með því að hringja í síma 595 6000 og skrá áskrift á skiptiborði Skjásins.
Hvernig verður greiðslum fyrir áskriftina háttað?
Áskrifendur geta valið um þrjár greiðsluleiðir, A) beingreiðslur (skuldfært af debetkorti), B) boðgreiðslur (skuldfært af kreditkorti) eða C) greiða sjálft í heimabankanum. Bankakostnaður er 60 kr. fyrir hverja greiðslu.
Athugið að við sendum enga greiðsluseðla heim vegna þess að það kostar 250 kr. aukalega nema um það sé sérstaklega beðið. Allir reikningar eru því birtir rafrænt í heimabanka viðkomandi.
Mun öll dagskráin vera í læstri dagskrá?
Skjár Einn er með opinn glugga alla virka daga á milli kl 18-20.
Þarf fólk að kaupa eða leigja afruglara til að ná SkjáEinum og hvaða verð mun þá þurfa að greiða ?
Ekki er þörf á að kaupa búnað en hægt er leigja myndlykla hjá Símanum eða Vodafone. Nauðsynlegt er þó að hafa myndlykil annað hvort frá Símanum eða Vodafone. Greiða þarf grunngjöld af búnaði og er mánaðarleg leiga samkvæmt verðskrá hjá Símanum og Vodafone hverju sinni.
Hvernig verður með efni SkjásEins sem hefur verið aðgengilegt á vefnum og í gegnum Sjónvarp Símans?
SkjárFrelsi er nýjung sem felur í sér að allir áskrifendur SkjásEins á ADSL Sjónvarpi Símans og ADSL kerfum Vodafone (Digital Plús) geta horft á innlenda og erlenda sjónvarpsþætti sjónvarpsstöðvarinnar þegar þeim hentar í eina til fjórar vikur frá útsendingu.
Ef ég er með fleiri en einn myndlykil á heimilinu opnast þá SkjárEinn á þeim?
Aðgangur að SkjáEinum takmarkast ekki eingöngu við aðalmyndlykil heimilisins heldur er tekið fullt tillit til þess að víða eru fleiri en eitt sjónvarp á heimili. Nú er því hægt að bæta aukalykli á hvert heimili sem nálgast má hvort sem er hjá Símanum eða Vodafone.
Ef að maður er bæði með Digital ísland og Sjónvarp Símans, opnast þá SkjárEinn á báðum kerfum ef ég gerist áskrifandi?
Nei. Aðeins er hægt að opna annað kerfið í einu.