20. september - Red Dwarf eru vinsælir gamanþættir sem fjalla um Dave, eina lifandi manninn sem eftir er í heiminum. Einu samskipti sem hann hefur eru við heilmynd af besta vini hans. Þættirnir eru sýndir kl. 20.50 á fimmtudögum á BBC Entertainment.
21. september - The Missing er bandarískur vestri með Cate Blanchette og Tommy Lee Jones í aðalhlutverkum. Kvikmyndin fjallar um föður sem hittir dóttur sína á ný eftir 20 ára búsetu með indíánum. The Missing er sýnd föstudaginn 21. september kl. 19.25 á NRK3.
22. september - Best of the Situation Room er fróðlegur þáttur í umsjá fréttahauksins Wolf Blitzer. Í þáttunum er farið yfir það markverðasta í fréttum liðinnar viku. Best of The Situation Room er á CNN kl. 19.00 alla laugardaga.
23. september - 21st Century Sex Slaves Vönduð heimildamynd um mansal þar sem fréttamenn villa á sér heimildir til að afhjúpa hina skelfilegu veröld mansalsiðnaðarins sem oftar en ekki á rætur að rekja til Suð-austur Asíu. 21st Century Sex Slaves er sýnd sunnudaginn 23. september á National Geographic kl. 19.30.
24. september - Ben 10 Omniverse er hressandi teiknimynd um Ben sem nú er orðinn 16 ára. Hann er eins og aðrir strákar á hans aldri að því undanskildu að hann getur breytt sér í geimverur af öllum stærðum og gerðum. Ben 10 Omniverse er sýndur á mánudögum kl. 16.30 á Cartoon Network. Fyrsti þátturinn fer í loftið 24. september en þá hefst hann kl. 16.00 enda um tvöfaldan þátt að ræða.
25. september - Charly's Cake Angels er skemmtilegur þáttur um hæfileikaríkustu kökugerðarmenn veraldar. Ímyndunaraflið fær lausan tauminn í þessum þáttum sem notið hafa mikilla vinsælda. Sýningar hefjast á Charly's Cake Angels þriðjudaginn 25. september kl. 15.40 á Food Network.
26. september - Five Daughters er þriggja þátta sería sem fjallar um hryllilega glæpi sem framdir voru í Ipswich árið 2006 þegar fimm ungar stúlkur voru myrtar með köldu blóði. Sýningar hefjast á Five Daughters miðvikudaginn 26. september kl. 21.05 á SVT1.






