Naomi hefur augastað á viðskiptafélaga Annie en kemst að því að hún er ekki ein um hituna. Dixon er boðinn plötusamningur og Adrianna viðrar grunsemdir sínar um Vanessu við Liam.
90210
Ný og endurbætt útgáfa af vinsælustu unglingaseríu allra tíma, Beverly Hills 90210.
Í þessari útgáfu er það Wilson-fjölskyldan sem er miðpunktur sögunnar. Systkinin Annie og Dixon Wilson fluttu...
Ný og endurbætt útgáfa af vinsælustu unglingaseríu allra tíma, Beverly Hills 90210.
Í þessari útgáfu er það Wilson-fjölskyldan sem er miðpunktur sögunnar. Systkinin Annie og Dixon Wilson fluttu til Beverly Hills með foreldrum sínum og komust fljótt að því að líf unglinganna í þessu ríkisbubbasamfélagi var gjörólíkt því sem þau áttu að venjast í Kansas.
Líkt og í upprunalegu útgáfu þáttanna fá áhorfendur að fylgjast með ástum og átökum unglinganna og sjá að lífið í Beverly Hills er ekki bara dans á rósum.
Þetta er fjórða serían af þessum vinsælu þáttum. Þegar hér er komið sögu eru söguhetjurnar komnar í háskóla. Naomi er ófrísk og á erfitt með að sætta sig við að vera ekki lengur vinsælasta stelpan í skólanum og grípur til sinna ráða.