Gestir kvöldsins að þessu sinni eru þeir Jóhannes Haukur Jóhannesson, Pétur Örn Guðmundsson og Atli Þór Albertsson
HA?
HA? er ný tegund af spurningaþætti þar sem skemmtanagildið skipar stærstan sess.
Hér skipta stigin engu máli heldur leitin og leiðin að rétta svarinu.
Markmiðið er að skemmta sér og öðrum...
HA? er ný tegund af spurningaþætti þar sem skemmtanagildið skipar stærstan sess.
Hér skipta stigin engu máli heldur leitin og leiðin að rétta svarinu.
Markmiðið er að skemmta sér og öðrum - og vonandi fræða um leið!
Umsjónarmaður þáttarins er leikarinn góðkunni Jóhann G. Jóhannsson (Jói G.) en honum til halds og trausts er Sólmundur Hólm. Munu þeir fá til sín góða gesti í hverri viku til að taka þátt í fjörinu.
Höfundur spurninga er hinn geðþekki sagnfræðingur og Luton Town aðdáandi, Stefán Pálsson.
Jói G. lýsir inntaki þáttarins og starfssviði sínu svona: „Spurningarnar eru margar ómögulegar og ósanngjarnar og leitin að rétta svarinu því margslungin og háskaleg!
Ég mun því að eigin geðþótta ekki síður umbuna þátttakendum fyrir að vera áhugaverðir og skemmtilegir frekar en klárir og krúttlegir.”
Þetta er önnur sería af Ha? en sú fyrri sló vægast sagt í gegn síðasta vetur.