Sviðslistamaður leitar ásjár lækna á spítalanum. Fljótlega renna tvær grímur á læknanna sem halda að mögulega er hann að búa til sjúkdómseinkenni listarinnar vegna.
House M.D.
Skapstirði læknirinn Gregory House snýr aftur með látum.
Síðustu þáttaröð lauk með því að House hafði setið fastur í húsarústum, séð lífið í nýju ljósi og loks náð að bjarga sér. Fyrsti þáttur ...
Skapstirði læknirinn Gregory House snýr aftur með látum.
Síðustu þáttaröð lauk með því að House hafði setið fastur í húsarústum, séð lífið í nýju ljósi og loks náð að bjarga sér. Fyrsti þáttur sjöundu þáttaraðar hefst á því að House og Cuddy eru týnd enda náðu þau loks að rugla saman reytum. House er ástfanginn upp fyrir haus og virðist hafa lítinn tíma fyrir sjúklinga með undarlega kvilla. Þegar loks er hótað að loka deildinni á spítalanum verður House að taka til sinna ráða.
Hugh Laurie var tilnefndur til Emmy-verðlauna fyrir frammistöðu sína í þessari þáttaröð, enda er hann búinn að sanna sig sem einn allra besti leikarinn í sjónvarpi.