- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning




Ná í Flash spilarann

Sería 1 - Þáttur 14 Sýndur á SkjáEinum 6. október 2009

Núna skoðum við leikið efni. Hvunndagssögur voru örleikrit sem voru í beinni útsendingu héðan og þaðan úr borginni, Bára Marens fer á kostum og ekki síður Þorsteinn Guðmundsson í Atvinnumanninum. Silvía Nótt leikur á alls oddi og ekki var Johnny Nash síðri. Einnig sjáum við brot úr þáttum eins og Venna Páer, Kokkurinn og Piparsveininn, Sigtið ofl.

SkjárEinn í 10 ár

Þriðjudaginn 20. október heldur SkjárEinn upp á 10 ára afmæli með tveggja tíma skemmtidagskrá í beinni útsendingu. Þar koma mörg kunnugleg andlit úr 10 ára sögu SkjásEins fram og skemmta áhorfe...

Þriðjudaginn 20. október heldur SkjárEinn upp á 10 ára afmæli með tveggja tíma skemmtidagskrá í beinni útsendingu. Þar koma mörg kunnugleg andlit úr 10 ára sögu SkjásEins fram og skemmta áhorfendum. Fjögur þriðjudagskvöld fyrir afmælisdaginn eru sýndir skemmtiþættir í umsjón Dóru Takefusa þar sem stiklað er á stóru í sögu SkjásEins og rifjuð upp eftirminnileg atvik. Á þessum áratug hefur verið framleiddur fjöldinn allur af ógleymanlegum íslenskum þáttum fyrir SkjáEinn, allt frá Íslenskri kjötsúpu til Silfur Egils.

  • Þáttur 15 Sýndur á SkjáEinum 13. október 2009

  • Þáttur 14 Sýndur á SkjáEinum 6. október 2009



Síður Skjásins


Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is